15. júlí 2010 10:52 |
Skýrsla RNU 2009 |
Út er komin ársskýrsla Rannsóknarnefndar umferðarslysa fyrir árið 2009. Árið 2009 fórust sautján manns í fimmtán umferðarslysum á Íslandi. Það eru fimm fleiri en árið 2008 þegar tólf fórust í tólf umferðarslysum. Þegar litið er aftur í tímann má sjá að nokkur fækkun hefur orðið á banaslysum í umferðinni. Á sex ára tímabili árin 1998-2003 fórust að meðaltali tuttugu og sex í umferðarslysum. Undanfarin sex ár (2004-2009) hafa að meðaltali farist tuttugu manns og skera árin 2007-2009 sig þar nokkuð úr hvað fækkun varðar.
Áfengislás og lækkun refsimarka í 0.2 prómill.
Ölvunarakstur var algengasta orsök banaslysa árið 2009 en þrjú slys má rekja til þess að ökumenn voru ölvaðir og vanhæfir til aksturs. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lagt til við nefnd um endurskoðun umferðarlaganna tvö úrræði til að sporna við ölvunarakstri. Það er mat nefndarinnar að refsimörk vegna ölvunaraksturs eigi að vera sem næst núlli og því leggur nefndin til að mörkin verði lækkuð úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Hin tillaga nefndarinnar felur í sér að settir verði áfengislásar í bifreiðir ökumanna sem hafa verið teknir fyrir ölvunarakstur. Sú aðgerð er fyrst og fremst hugsuð vegna ökumanna sem aka endurtekið undir áhrifum áfengis og láta ekki segjast. Samhliða áfengislás myndu ökumenn undirgangast námskeið um hættu sem af ölvunarakstri stafar. Ítarlega er fjallað um þessa tillögu nefndarinnar í skýrslunni.
|
meira... |
| |
8. júlí 2010 10:02 |
Skýrslur RNU um banaslys á Þingvallavegi, Birkimel og Hverfisgötu árið 2009 |
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið við skýrslur um þrjú banaslys sem urðu í umferðinni árið 2009. Slysin urðu á Hverfisgötu við bílastæðahúsið Traðarkoti, Hringbraut við Birkimel og Þingvallavegi við Brúsastaði. Í skýrslunum kemur fram orsakagreining og tillögur sem nefndin gerir í öryggisátt. |
| |
17. desember 2009 14:56 |
Mikilvægi bílbelta |
Það er engum vafa undirorpið að öryggisbeltið er eitt mikilvægasta öryggistækið í bifreiðum. Það hefur bjargað mörgum mannslífum og fjölmargir einstaklingar hljóta lítil eða engin meiðsli í umferðarslysum vegna þess að þeir nota bílbelti. Þó er það svo, að á ári hverju, rannsakar Rannsóknarnefnd umferðarslysa banaslys í umferðinni sem að öllum líkindum hefði ekki orðið banaslys hefði bílbelti verið notað.
Vegna þessa hefur Rannsóknarnefnd umferðarslysa lokið gerð skýrslu um mikilvægi þess að spenna bílbeltið. Í skýrslunni er fjallað um þá krafta sem verka á einstakling sem lendir í umferðarslysi og hvernig bílbeltið getur komið í veg fyrir alvarlega áverka. Skýrsluna má nálgast hér: Spenntu beltið |
| |
9. desember 2009 10:37 |
Skýrslur RNU um þrjú banaslys árið 2009 |
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið skýrslum um þrjú banaslys í umferðinni sem urðu árið 2009. Í byrjun árs varð árekstur á Ólafsfjarðarvegi við bæinn Krossa þar sem fórst 65 ára karlmaður. Í ábendingu vegna slyssins hvetur nefndin ökumenn sem eru í áhættuhópi vegna veikinda eða lyfjanotkunar til að bregðast við af ábyrgð og gangast undir skoðun á ökuhæfi sínu hjá læknum og stjórnvöldum. Allmörg banaslys í umferðinni má rekja til þessa þáttar hin síðari ár og hvetur nefndin til aukinnar umræðu og forvarna í þessum efnum.
Þann 5. janúar 2009 varð banaslys á Suðurlandsvegi þar sem ekið var á vegfaranda sem var úti að hlaupa. Slysið varð í myrkri á óupplýstum vegi. Beinir nefndin því til hlaupara og gangandi vegfarenda að huga að sýnileika sínum í umferðinni. Á hverju ári verða alvarleg umferðarslys sem mögulega hefði verið hægt að afstýra með góðum endurskinsmerkjum.
Undanfarin ár hefur ölvunarakstur verið önnur helsta orsök banaslysa í umferðinni og bílbelti ekki notuð sú þriðja. Í skýrslu um banaslys sem varð á Suðurfjarðarvegi við Dalsá 16. maí 2009 missti ölvaður ökumaður stjórn á bifreið með þeim afleiðingum að hún valt nokkrar veltur utan vegar. Farþegi í bifreiðinni lést. Hann notaði ekki bílbelti.
Skýrslur um þessi slys má nálgast hér: Skýrslur RNU um banaslys 2009
|
| |
15. október 2009 12:54 |
Akstur undir áhrifum áfengis eða lyfja á ekki að líða |
Við rannsóknir nefndarinnar á banaslysum í umferðinni hefur komið í ljós að ýmsar ástæður eru fyrir því að ökumenn setjast undir stýri í óökuhæfu ástandi. Stundum er ökumaðurinn einn á ferð og enginn veit um ferðir hans. En tilvik hafa komið upp þar sem fjöldi einstaklinga veit af ölvuðum ökumanni í umferðinni og á það sérstaklega við meðal ungmenna.
Í einu banaslysi sem nefndin rannsakaði hafði hópur ungmenna verið á dansleik. Var ökumaður hópsins allsgáður en hann var ekki eigandi bifreiðarinnar. Að loknum dansleik ók ökumaðurinn heim til sín fyrst. Eigandi bifreiðarinnar tók þá við lyklunum til að aka farþega heim og síðan bifreiðinni heim til sín. Við rannsókn málsins kom fram að þetta fyrirkomulag, að allsgáður ökumaður afhendi ölvuðum eiganda bifreiðar lykla að bifreið , væri ekki óþekkt. Í 44. gr. umferðarlaga nr. 50 frá árinu 1987, er skýrt tekið fram að enginn má stjórna eða reyna að stjórna ökutæki undir áhrifum áfengis. Þar er einnig tekið fram að ekki má fela manni sem er undir áhrifum áfengis stjórn ökutækis. Öllum má vera það ljóst, að einstaklingar sem eru undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna, eru ekki í ökuhæfu ástandi.
Ölvunarakstur er þriðja algengasta frumorsök banaslysa í umferðinni árin 1998 – 2008. Almenningur þarf að taka harða afstöðu gegn þessu meini. Til að ná yfirhöndinni í baráttunni við ölvunarakstur þurfa öll öfl þjóðfélagsins að vera samtaka. Efla þarf áróður og á sama tíma er brýnt að eftirlit lögreglu með ölvunar- og lyfjaakstri sé virkt. |
| |
8. júlí 2009 12:59 |
Skýrsla Rannsóknarnefndar umferðarslysa 2008 |
Skýrsla RNU 2008 |
Fækkun banaslysa í umferðinni
Út er komin ársskýrsla Rannsóknarnefndar umferðarslysa fyrir árið 2008. Athygli vekur að undanfarin ár hefur banaslysum í umferðinni fækkað. Síðastliðin 5 ár (2004-2008) fórust 100 manns í umferðarslysum á Íslandi en á 5 ára tímabili þar á undan (1999-2003) fórust 129 í umferðarslysum. Algengasta orsök banaslysa í umferðinni árið 2008 var að biðskylda var ekki virt en þar á eftir kom hraðakstur. Árið 2008 létust 12 í umferðinni á Íslandi en rannsóknarnefnd umferðarslysa fjallaði um tíu banaslys í skýrslum sem gefnar voru út á vefnum http://www.rnu.is
Fækkun banaslysa ungra ökumanna
Eftirtektarvert er hve banaslysum, sem ökumenn á aldrinum 17-20 ára valda, hefur fækkað milli ára. Árið 2005 áttu ökumenn í þessum aldurshópi aðild að sex banaslysum í umferðinni og átta banaslysum árið 2006. Næstu tvö ár á eftir fækkaði slysum í þessum aldurshópi ökumanna. Árið 2007 varð einn ökumaður 17-20 ára valdur að banaslysi en árið 2008 voru þeir þrír.
Hækkun ökuleyfisaldurs
Þrátt fyrir að fækkun hafi orðið á slysum ungra ökumanna þá er það svo að nýliðar í umferðinni á Íslandi, 17 ára ökumenn, valda flestum umferðarslysum.Því er eðlilegt að hugleiða hvaða áhrif það hefði á slysatíðnina að hækka ökuréttindaaldur úr 17 árum í 18 ár. Rannsóknarnefndin telur miðað við fyrirliggjandi rannsóknir á þessu sviði að hlutfallsleg fækkun umferðarslysa meðal nýliða gæti orðið 5-9% ef bílprófsaldurinn verður hækkaður úr 17 árum í 18 ár. Að mati rannsóknarnefndarinnar vegur einnig þungt, að fólk verður ekki lögráða á Íslandi fyrr en við 18 ára aldur. Af þessum sökum er RNU fylgjandi því að ökuleyfisaldur verði hækkaður úr 17 árum í 18 ár á Íslandi
Lækkun prómillamarka í 0.2‰
Ölvunarakstur er þriðja algengasta orsök banaslysa í umferðinni á Íslandi (árin 1998-2008). Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að breyta eigi refsimörkum ölvunaraksturs úr 0,5 ‰ í 0,2 ‰ Fordæmi er fyrir þeirri aðgerð í Noregi og Svíþjóð. Þar með gætu ökumenn engan veginn réttlætt fyrir sjálfum sér né öðrum að drekka 1-2 bjóra eða léttvínsglös eins og nú tíðkast. Mikilvægt er að eyða hinu „gráa svæði“ sem margir ökumenn freistast út á og senda skýr skilaboð um að ökumenn eigi alls ekki að vera undir áhrifum áfengis í umferðinni líkt og umferðarlögin kveða á um.
|
meira... |
| |
3. mars 2009 11:50 |
Skýrsla RNU um banaslys á Siglufjarðarvegi 16.9.2008 |
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn á banaslysi sem átti sér stað á Siglufjarðarvegi við Sandvík þann 16. september 2008. Í slysinu missti ökumaðurinn stjórn á bifreið sinni og endaði í fjöruborði Sandvíkur. Slysið átti sér stað að morgni til og hafði ökumaðurinn verið við akstur alla nóttina. Að mati nefndarinnar eru allar líkur á að ökumaðurinn hafi misst bifreiðina út í vegkantinn vegna þreytu.
Rannsóknir RNU hafa sýnt að svefn og þreyta er fjórða helsta orsök banaslysa í umferðinni. Því er afar brýnt að ökumenn forðist að aka þreyttir. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að þreyta skerðir aksturshæfni sem og að hætta er á að þreyttur ökumaður dotti eða jafnvel sofni undir stýri. Rannsóknarnefnd umferðarslysa brýnir fyrir ökumönnum að gæta vel að þessari hættu. Eins ættu allir að vera á verði og gera athugasemdir við ferðaáætlanir vina og ættingja ef sýnt er að þær geri ekki ráð fyrir nægjanlegri hvíld ökumanns.
Ef ökumaður missir annað hjólið út af slitlagi er honum mikill vandi á höndum. Hætta er á að ökumaður missi endanlega stjórn á bifreiðinni þegar sveigt er inn á veginn aftur eins og raunin var í þessu slysi. Í slíkum tilfellum þarf ökumaður að meta hvort honum sé ekki betur borgið að stýra bifreiðinni beint út af vegi frekar en að sveigja inn á hann aftur.
Skýrslu nefndarinnar má nálgast hér: Siglufjarðarvegur við Sandvík 16.9.2008.
|
| |
3. febrúar 2009 10:12 |
Ný skýrsla RNU um banaslys á Suðurlandsvegi við Hvammsveg |
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur nú lokið rannsókn sinni á banaslysi sem átti sér stað á Suðurlandsvegi við Hvammsveg þann 11. apríl árið 2008. Í því slysi sofnaði ökumaður undir stýri í lok angrar næturvaktar með þeim afleiðingum að bifreið sem hann ók lenti yfir á röngum vegarhelmingi. Í slysinu lést ökumaður sendibifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt. Skýrslu nefndarinnar um slysið má nálgast hér: Suðurlandsvegur við Hvammsveg 11.4.2008.
|
meira... |
| |
29. janúar 2009 12:12 |
Skert ökuhæfni vegna veikinda orsök. |
30. desember 2008 10:17 |
Fækka mætti alvarlegum umferðarslysum um 20% |
30. október 2008 13:31 |
Skýrslur RNU um banaslys á Vesturgötu/Akranesi og Kringlumýrarbraut |
16. október 2008 10:53 |
Varnaðarskýrsla um Suðurlandsveg |
30. júní 2008 12:05 |
Skýrsla RNU 2007 |
2. apríl 2008 15:08 |
Ábending vegna vegræsis. Skýrsla RNU um banaslys við Ærlæk |
26. mars 2008 14:50 |
Skýrslur RNU um banaslys í Norðurárdal í Skagafirði og á Laugarvatnsvegi |
12. febrúar 2008 16:30 |
Ástand sæta, sætisfestinga og bílbelta mjög ábótavant. Skýrsla RNU um hópbifreiðarslys í Bessastaðabrekku |
1. febrúar 2008 15:13 |
Skýrslur RNU um banaslys í Hörgárdal og á Þorlákshafnarvegi |
23. janúar 2008 16:08 |
Bifhjólaslys til rannsóknar í Danmörku árið 2008 |
15. nóvember 2007 09:05 |
Varnaðarskýrsla um veikindi og ökumenn |
17. október 2007 14:26 |
Skýrsla RNU um banaslys á Akrafjallsvegi við Innnesveg |
16. október 2007 13:49 |
Eftirlit með vöru- og flutningabifreiðum |
3. júlí 2007 15:18 |
Skýrsla RNU árið 2006 |
2. júlí 2007 15:08 |
Er kerran þín í lagi? |
13. júní 2007 11:12 |
Nýjar skýrslur |
eldri fréttir
|